Tuesday, December 13, 2011

Tíminn líður hratt.

En greinin á myndinni fyrir neðan er komin í hús, ég er að hugsa um að spreyja hana hvíta. Ætla að byrja daginn á að snyrta hana til og hafa hana í laginu eins og ég vil. Ég ætla líka að mála smá hérna heima hjá mér og taka til ( eins og venjulega )..
En fyrsta mál á dagskrá er kaffibolli dagsins..

Monday, October 31, 2011

Næsta verkefni

Ég hef endalaust gaman af því að fríkka uppá heimilið hvort sem það er að skreyta það með fallegum húsgögnum, byggja, breyta eða hanna. Þessi mynd útskýrir best það sem mig langar að gera næst, ég ætla út og klippa svona trjágrein úr garðinum, hengja hana upp og skreyta fyrir jólin. Set inn myndir þegar ég byrja.



Loksins er ég að komast á réttan stað.

Ég fékk þá hugmynd um daginn að fara að blogga, síðan þá hef ég strandað á notendanafni, útlitsgerðum, stafastærðum og ég veit ekki hverju og hverju en nú held ég að þetta sé að smella, kemur í ljós hvort ég komi einhverju frá mér á næstunni.